Handbolti

Balic gerði eins árs samning við Wetzlar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Balic á blaðamannafundinum í dag.
Balic á blaðamannafundinum í dag. Mynd - www.handball-world.com/
Ivano Balic er genginn til liðs við þýska úrvalsdeildarliðið Wetzlar og leikur því með liðinu á næsta tímabili.

Balic hefur í gegnum árin verið einn allra besti leikstjórnandi í heiminum en Fannar Friðgeirsson lék á miðjunni hjá liðinu á síðustu leiktíð. Hann yfirgaf félagið í vor og tekur Balic hans stöðu.

„Ég er gríðarlega ánægður að vera kominn hingað,“ sagði Balic á blaðamannafundi þegar leikmaðurinn var kynntur.

Þessi 34 ára Króati gerði eins árs samning við Wetzlar en hann var á mála hjá spænska félaginu Atletico Madrid á síðasta ári.

Balic varð heimsmeistari með króatíska landsliðinu árið 2003, vann gull á Ólympíuleikunum árið 2004 og hefur tvisvar verið valinn besti leikmaður heims.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×