Körfubolti

Riðlakeppni EM í körfubolta lokið

Þjóðverjar fagna fyrr í kvöld.
Þjóðverjar fagna fyrr í kvöld.
Riðlakeppni EM karla í körfubolta, Eurobasket, lauk í kvöld og ljóst hvaða lið eru komin áfram í milliriðla keppninnar sem fram fer í Slóveníu.

Spilað var í fjórum sex liða riðlum. Þrjú efstu liðin í hverjum riðli fara svo áfram í tvo milliriðla. Í kjölfarið taka við átta liða úrslit.

Úrslit dagsins:

Bretland-Úkraína  68-87

Lettland-Makedónía 76-66

Georgía-Spánn 59-83

Grikkland-Finnland 77-86

Þýskaland-Ísrael  80-76

Litháen-Bosnía 72-78

Króatía-Tékkland 70-53

Ítalía-Svíþjóð 82-79

Belgía-Frakkland 65-82

Svartfjallaland-Serbía 83-76

Slóvenía-Pólland 61-71

Tyrkland-Rússland 77-89

Þessi lið eru komin áfram:

Frakkland

Úkraína

Belgía

Serbía

Lettland

Litháen

Spánn

Króatía

Slóvenía

Ítalía

Finnland

Grikkland




Fleiri fréttir

Sjá meira


×