Handbolti

Ólafur Gústafsson og félagar í Flensburg með þægilegan sigur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ólafur Gústafsson komst ekki á blað í kvöld.
Ólafur Gústafsson komst ekki á blað í kvöld. Mynd / Getty Images
Flensburg vann þægilegan sigur á Hannover-Burgdorf, 27-22, í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld en leikurinn fór fram á heimavelli Flensburg.

Ólafur Gústafsson, leikmaður Flensburg, komst ekki á blað í leiknum en það var Anders Eggert Jensen sem var markahæstur hjá Flensburg með sex mörk.

Liðið er því með fullt hús stiga í þýsku deildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×