Handbolti

Hildur fékk nokkrar mínútur í stórsigri

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hildur (lengst til vinstri) fagnar ásamt nýju liðsfélögunum um helgina.
Hildur (lengst til vinstri) fagnar ásamt nýju liðsfélögunum um helgina. Mynd/Heimasíða Kolbenz/Weibern
Koblenz/Weibern vann tíu marka sigur á Trier í fyrstu umferð efstu deildar þýska handboltans um helgina.

Hildur Þorgeirsdóttir gekk í raðir þýska liðsins frá Blomgberg Lippe í sumar. Hildur kom inn á undir lok leiksins og opnaði markareikning sinn fyrir liðið.

1712 áhorfendur studdu heimakonur sem ætla sér stóra hluti í vetur. Svenja Huber skoraði tíu mörk fyrir Kolbenz/Weibern þar af sjö mörk úr sjö vítum.

Hildur og félagar mæta Blomberg Lippe á miðvikudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×