Sannleikurinn: Pírati hyggst ekki ávarpa þingmenn samkvæmt venju Andri Þór Sturluson skrifar 13. september 2013 11:57 Sjomle Jón Þór við þingstörf.
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, vakti athygli á þingfundi Alþingis í dag þegar hann ávarpaði þingmenn og ráðherra ekki sem háttvirta og hæstvirta heldur sem sjomle og guggur. Forseti Alþingis gerði athugasemd við þetta en Jón Þór svaraði guggunni fullum hálsi og sagðist ekki ætla að láta af ávarpi sínu. Hann las upp úr bókinni Háttvirtur þingmaður þar sem fram kemur að um sé að ræða þingvenju. Hann muni sýna þingmönnum og ráðherrum virðingu en sé á móti því að teknir séu upp óverðskuldaðir virðingatitlar. Þingmenn og ráðherrar hafi ekki unnið sér inn fyrir því að vera ávarpaðir sem háttvirtir og hæstvirtir. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, gugga Sjálfstæðisflokks, sagðist sammála sjomle Jóni Þór um að þingmenn og ráðherrar verði að vinna sér inn virðingu en ósammála um að einn þingmaður geti breytt venjum og hefðum sem viðgengist hafa í áratuga rás. Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og ekkert mál er of stórt eða of lítið. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en vinsamlegast látið hana í friði.
Harmageddon Mest lesið Segir Ísland síðasta vígi kristinna manna Harmageddon Fannst ekki spennandi að spila Little Talks fimm sinnum á dag Harmageddon Púlsinn 21.ágúst 2014 Harmageddon Sannleikurinn: Gefur kost á sér í 4.-5. sæti Harmageddon Sönnun fyrir tilvist Guðs Harmageddon Með rokkið í blóðinu Harmageddon Sannleikurinn: Nýjustu heimskupör Bakkavararbræðra kostar þá 700 þúsund Harmageddon Púlsinn 18.ágúst 2014 Harmageddon Þetta er ekki úr vísindaskáldsögu Harmageddon Telur borgina þurfa að koma með innlegg í kjaraviðræður Harmageddon