Sannleikurinn um Hátíð vonar Andri Þór Sturluson skrifar 4. október 2013 10:47
Hátíð vonar fór fram í Laugardalshöll dagana 28.-29. september. Hátíðin fór að mestu leyti vel fram þrátt fyrir að flestir virtust ölvaðir. Engin nauðgun var tilkynnt á hátíðinni en lögreglu bárust fjórar tilkynningar um að nafn drottins hafði verið lagt við hégóma. Þá fundust lítilræði af maríjúana í bíl manns og viðurkenndi eigandi bílsins að ætlunin hefði verið að selja efnið á hátíðinni. Yfir 2.600 manns mættu og fylltu þannig höllina í tvígang yfir helgina. Hátíðin var mikið gagnrýnd fyrir aðalpredikara sinn, Franklin Graham, sem þekktur er fyrir skoðanir sínar á samkynhneigðum en hann er einn af boðberum bókstafstrúar í Bandaríkjunum. Harmageddon mætti að sjálfsögðu á hátíðina og við tókum með okkur samkynhneigðasta mann sem við þekkjum. YouTube-stjörnuna Ara Jósepsson. Við gátum því miður ekki stoppað lengi því okkur leiddist svo skelfilega en við tókum upp það sem fyrir augu bar.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en við vonum að þið látið hana í friði.
Harmageddon Mest lesið „Auðvitað er Hildur bara mennsk eins og við öll“ Harmageddon Sannleikurinn: Fjármálaráðherra byrlað nauðgunarlyf á gamlárskvöld Harmageddon Sannleikurinn: Hanna Birna segir af sér vegna leka Harmageddon Varar við hugmyndum um sérstaka skóla fyrir múslima Harmageddon Púlsinn 25.ágúst 2014 Harmageddon Segir umhverfisráðherra ekki notast við rök Harmageddon Tveir látnir vegna eiturlyfsins Molly Harmageddon Árni Hjörvar spilar með John Fogerty Harmageddon Leikræn tilþrif sem eiga best heima í sápuóperu Harmageddon Miðasalan á Eistnaflug er hafin. Harmageddon