Handbolti

SönderjyskE enn án stiga í deildinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ágúst Jóhannsson
Ágúst Jóhannsson mynd / daníel
SönderjyskE er hefur ekki farið vel af stað  í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik kvenna en liðið tapaði í gær sínum sjöunda leik í röð.

SönderjyskE  lék við Vejen á útivelli og fóru leikar 29-18 en staðan í hálfleik var 13-5.

Liðið missti tvo gríðar sterka leikmenn í meiðsli í upphafi tímabilsins en þær Stella Sigurðardóttir, Karen Knútsdóttir og Rameune Pekarskyte leika allar með SönderjyskE.

SönderjyskE er í neðsta sæti deildarinnar með ekkert stig en Ágúst Jóhannsson þjálfar þær dönsku og fer liðið skelfilega illa af stað á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×