Handbolti

Þórir fór á kostum með Kielce | Skoraði 11 mörk

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þórir Ólafsson í leik með Kielce
Þórir Ólafsson í leik með Kielce MYND/HEIMASÍÐA KIELCE
Hornamaðurinn Þórir Ólafsson átti magnaðan leik með liði sínu Kielce í pólsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld en leikmaðurinn gerði ellefu mörk í sigri liðsins á Mielec.

Kielce vann leikinn örugglega 38-31 og er liðið í efsta sæti deildarinnar með 14 stig, fjórum stigum á undan næsta liði.

Kielce mætir þýska liðinu Kiel í Meistaradeild Evrópu um helgina en með Kiel leika þeir Aron Pálmarsson og Guðjón Valur Sigurðsson. Þjálfari liðsins er Alfreð Gíslason.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×