Sannleikurinn: Rafmagnið tekið af Reykjavík í kvöld Andri Þór Sturluson skrifar 15. október 2013 14:30 Svæðin sem slökkt verður á eru merkt 15, 2, 9 og 20 á kortinu en þau eru kölluð verri svæðin meðal starfsmanna borgarinnar.
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að taka rafmagnið af á fjórum svæðum í kvöld milli 21:30 og 22.00 til að borgarbúar þurfi nú ekki að fara út fyrir borgarmörkin til að sjá norðurljósin, segir á Facebooksíðu Dags B. Eggertssonar borgarfulltrúa. Eru þetta svæðin: Grafarholt, Breiðholt, Öskjuhlíð og Skólavörðuholt en Dagur segir óþægindin ekki verða mikil þar sem fjölmargir í Breiðholtinu og Skólavörðuholtinu séu í skuld við Orkuveituna og hafi hvort eð er ekkert rafmagn og svo skiptir Grafarholtið engu máli því þar býr leiðinlegt fólk sem hatar borgarstjórnaflokkana. Þá biður hann hommana í Öskjuhlíðinni að keyra varlega í kvöld því ljósastaurarnir verða óvirkir. Segir hann þetta gert fyrir þá fjölmörgu borgarbúa sem nenna ekki út fyrir borgarmörkin en vilja engu að síður njóta ljósadýrðarinnar. Þá hafa símafyrirtækin samþykkt að slökkva á internetaðgangi borgarbúa til að sporna við miklum fjölda hundleiðinlegra norðurljósamynda sem misgóðir sjálflærðir ljósmyndaplebbar hrúga inn á Facebook hjá sér og enginn hefur gaman af.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en slökkt verður á henni í kvöld.
Harmageddon Mest lesið Sannleikurinn: Stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar stórslasaður eftir fagnaðarlæti Harmageddon Hljómsveitin Vök með útgáfutónleika í kvöld Harmageddon Átökin verði staðbundin ef til þeirra kemur Harmageddon Barði í Bang Gang í hljómsveit með Jean-Benoit úr Air Harmageddon Sannleikurinn: 65% hjónabanda á Íslandi enda með dauða Harmageddon Vildi ekki að persónulegir brestir vörpuðu skugga á störf Pírata Harmageddon Queens of the Stone Age á toppi Pepsi Max listans Harmageddon Vala Grand trúlofuð á ný Harmageddon Prúðmannleg handtaka Harmageddon Obama hætti að reykja af ótta við eiginkonu sína Harmageddon