Handbolti

Nóg að gera hjá íslenskum dómurum erlendis

Stefán Árni Pálsson skrifar
Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson
Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson mynd / valli
Um helgina mun Ingvar Guðjónsson dæma leik Levanger HK frá Noregi og DHK Banik Most frá Tékklandi í EHF keppni kvenna ásamt Færeyingnum Eydun Samuelsen en leikurinn fer fram á Levanger á laugardaginn.

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma síðan leik Naturhouse la Rioja frá Spáni og Flensburg frá Þýskalandi í Meistaradeild Evrópu um þar næstu helgi en Ólafur Gústafsson leikur með þýska liðinu Flensburg.

Kristján Halldórsson verður síðan eftirlitsmaður á leik FyllingBergen og Mors-Thy Handbold í EHF keppni karla sunnudaginn 20.október en leikurinn fer fram í Noregi en HSÍ greinir frá þessu fyrr í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×