Réði fólk alls ekki við sig og stofnaði hópurinn 7 önnur félög, gáfu út skáldsögu, héldu innanhúsmót í badminton og föndruðu músastiga, allt á þessum hálftíma stofnfundi.
Félögin sem fólkið stofnaði samhliða hagmunarfélaginu voru: Félag gegn hárlosi, Frelsissamtök Vestmannaeyja, Úkalele spilarar á Íslandi, Gæludýraeigendafélag Grafarvogs, Ungir endurvinnslusinnar, Leynisamtökin Agnar og Stuðningshópur Jóhanns Halldórssonar söngvara sem næsta James Bond.
Öll þessi félög voru stofnuð án vitneskju um þriðjungs fundargesta sem voru uppteknir í teygjutvist og tóku því ekki eftir því sem gerðist í kringum þau.

Var salurinn nánast ónýtur eftir þennan stutta "fund".
Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu sem ... .