Sannleikurinn: Sjálfstæðismenn í Reykjavík telja sig nú eiga séns Andri Þór Sturluson skrifar 30. október 2013 20:40 TAKK GNARR! Þú gafst okkur von.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eru himinlifandi eftir að borgarstjóri Reykjavíkur tilkynnti að hann ætlaði ekki að bjóða sig fram aftur og að flokkur hans yrði lagður niður.„Fyrst að Jón er hættur þá eigum við séns. Ég er honum óendanlega þakklátur fyrir það að hafa stigið til hliðar. Ég var orðinn hræddur um fínu innivinnuna mína“,“ segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag.Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra faðmaði Hönnu Birnu innanríkisráðherra þegar ljóst var að eina ógn Sjálfstæðisflokksins ætlaði að hætta í stjórnmálum.Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins segja að samstarfið við Jón og hans hyski hafi verið ágætt. „Við höfum auðvitað haft ólíkar áherslur. Hann er svona að vinna fyrir alla og við erum að vinna fyrir alla sem eiga jakkaföt. Ég hef gagnrýnt störf hans og meirihlutans, oft hef ég þurft að ríghalda í eitthvað hálmstrá en það er sem betur fer búið núna,“ segir Júlíus Vífill, oddviti Sjálfstæðisflokksins sem enginn man hvað heitir og við þurftum að fletta upp, í samtali við fréttastofu. „En nú er ljóst að við eigum séns. Gnarrinn er farinn og ég fagna við barinn,“ sagði Júlíus að lokum og hélt að hann væri að vera sniðugur.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en fáir gefa henni séns.
Harmageddon Mest lesið Kanye West tók 360 milljónir króna fyrir tónleika og enginn nennti að horfa Harmageddon Líf á jörðinni gæti þurrkast út Harmageddon Sannleikurinn: Vonar að pabbi verði ekki mikið fullur Harmageddon Lostprophets söngvarinn Ian Watkins játar sekt í ógeðslegu barnaníðsmáli Harmageddon Vildi ekki að persónulegir brestir vörpuðu skugga á störf Pírata Harmageddon Bombay Bicycle Club með tónleika í Hörpu í nóvember Harmageddon Jack Live tónleikar á Húrra í kvöld Harmageddon Söngvari Creed á ekki efni á mat Harmageddon Sykur þróar stílinn á nýrri plötu Harmageddon Endahnútur bundinn á Quarashi Harmageddon