Handbolti

Góður útisigur hjá strákunum hans Geirs

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Geir Sveinsson.
Geir Sveinsson. Mynd/NordicPhotos/Getty
Lærisveinar Geirs Sveinssonar í HC Bregenz unnu níu marka útisigur á SC Ferlach, 37-28, í austurrísku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Bregenz er í 3. sæti deildarinnar tveimur stigum á eftir toppliði Fivers Margareten og einu stigi á eftir HC Hard sem er í öðru sætinu. Bregenz hefur náð í 15 stig af 20 mögulegum.

Austurríski hornamaðurinn Marjan Klopcic var markahæstur hjá Bregenz með níu mörk en króatíski línumaðurinn Filip Gavranovic var með sex mörk.

Erlingur Richardsson og lærisveinar has í SG Westwien eru í fjórða sætinu eftir 33-25 sigur á HSG Bärnbach/Köflach í gærkvöldi. Íslensku þjálfararnir mætast síðan um næstu helgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×