Körfubolti

Góður sigur hjá Jóni og félögum í Evrópukeppninni

Jón Arnór í landsleik.
Jón Arnór í landsleik.
Jón Arnór Stefánsson og félagar í spænska liðinu CAI Zaragoza unnu sterkan sigur, 74-68, á ítalska liðinu Virtus Rome í kvöld.

Leikurinn var í D-riðli Eurocup en sigurinn kemur CAI upp að hlið Rome í öðru sæti riðilsins.

Okkar maður hafði óvenju hljótt um sig í kvöld. Skoraði aðeins eitt stig. Hann tók þess utan 7 fráköst og gaf 3 stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×