Handbolti

Ágúst og stelpurnar enn stigalausar í dönsku deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Karen Knútsdóttir skoraði tvö mörk í dag.
Karen Knútsdóttir skoraði tvö mörk í dag. Mynd/Valli
Stelpurnar hans Ágústs Jóhannssonar í SönderjyskE eru enn án stiga í dönsku kvennadeildinni í handbolta eftir sex marka tap á móti FC Kaupmannahöfn í dag.

SönderjyskE er nýliði í deildinni og hefur nú tapað átta fyrstu leikjum sínum en þetta var fyrsti leikur liðsins eftir landsleikjahlé.

Ramune Pekerskyte skoraði 3 mörk fyrir SönderjyskE, Karen Knútsdóttir var með tvö mörk og Stella Sigurðardóttir skoraði eitt mark. Sofie Bæk Andersen var markahæst með fimm mörk.

Ramune og Stella voru báðar reknar einu sinni útaf í tvær mínútur og bæði Karen og Ágúst fengu að líta gula spjaldið.

Lið FC Kaupmannahöfn lagði grunninn að sigrinum með góðum fyrri hálfleik sem liðið vann 14-8 en seinni hálfleikurinn fór síðan 13-13.

FC Kaupmannahöfn var aðeins með þrjú stig og einn sigur í fyrstu sjö leikjum sínum og þetta var því tækifæri fyrir SönderjyskE að koma sér loksins á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×