Handbolti

Tíu íslensk mörk í sigri Kiel

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Nordic Photos / Getty Images
Kiel komst á topp B-riðils Meistaradeildar Evrópu í handbolta með öruggum sigri á franska liðinu Dunkerque í dag, 29-21.

Aron Pálmarsson og Guðjón Valur Sigurðsson skoruðu fimm mörk hvor fyrir Kiel sem hafði sex marka forystu í hálfleik, 19-13. Niclas Ekberg var markahæstur hjá Kiel með sex mörk.

Kiel komst á toppinn þar sem að Kielce, lið Þóris Ólafssonar, tapaði fyrir Kolding frá Danmörku fyrr í dag, 29-24. Öll þrjú lið eru með átta stig í efstu þremur sætunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×