Handbolti

Fram úr leik í Evrópukeppninni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sigurbjörg Jóhannsdóttir, leikmaður Fram.
Sigurbjörg Jóhannsdóttir, leikmaður Fram. Mynd/Daníel
Fram tapaði öðru sinni með fjórtán marka mun fyrir ungverska liðinu Köfem SC í annarri umferð EHF-bikarkeppninnar í dag, 36-22.

Báðir leikirnir fóru fram ytra en í gær höfðu Ungverjarnir betur með sama markamun, 34-20.

Framarar byrjuðu vel og komust fjórum mörkum yfir, 6-2, eftir tíu mínútur. Ungverjar tóku þá frumkvæðið í leiknum og leiddu í hálfleik, 14-11. Ungverjarnir stungu svo af í seinni hálfleik eins og lokatölurnar bera með sér.

Ragnheiður Júlíusdóttir var markahæst í liði Fram, rétt eins og í gær, með tíu mörk. Sigurbjörg Jóhannsdóttir kom næst með fimm mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×