Handbolti

Hamburg enn ósigrað í Meistaradeildinni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur í baráttu við Domagoj Duvnjak, leikmann Hamburg, í dag.
Ólafur í baráttu við Domagoj Duvnjak, leikmann Hamburg, í dag. Nordic Photos / Getty Images
Evrópumeistarar Hamburg höfðu betur gegn löndum sínum í Flensburg í D-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag, 32-27.

Hamburg hefur unnið alla fimm leiki sína til þessa í riðlinum en þetta var uppgjör tveggja efstu liðanna í riðlinum.

Ólafur Gústafsson skoraði tvö mörk fyrir Flensburg í leiknum sem er með sjö stig að loknum fimm leikjum. Álaborg frá Danmörku er í þriðja sæti með fjögur stig.

Leikurinn var jafn framan af og staðan 15-14 fyrir Hamburg í hálfleik. Heimamenn sigu svo fram úr á síðustu 20 mínútum leiksins og tryggðu sér fimm marka sigur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×