Handbolti

Öruggt hjá Ljónunum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Alexander Petersson.
Alexander Petersson. Nordicphotos/Getty
Alexander Petersson skoraði tvö mörk og Stefán Rafn Sigurmannsson eitt í 34-26 sigri Rhein-Neckar Löwen gegn RK Zagreb í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Um 2000 áhorfendur sáu þýska liðið undir stjórn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar rúlla upp gestunum með frábærum fyrri hálfleik. Staðan í leikhléi var 21-11.

Gestirnir minnkuðu muninn í síðari hálfleik en komust aldrei nærri heimamönnum. Rúnar Kárason var á skýrslu hjá Ljónunum en tókst ekki að skora.

Ljónin sitja í öðru sæti í A-riðli með sjö stig, einu minna en Veszprem frá Ungverjalandi sem á leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×