Handbolti

Ólafur með átta mörk í sigurleik

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ólafur Guðmundsson og félagar gátu fagnað sigri í kvöld.
Ólafur Guðmundsson og félagar gátu fagnað sigri í kvöld. Mynd/Heimasíða Kristianstad
Íslendingaliðin IFK Kristianstad og Eskilstuna Guif unnu góða sigra í sænsku karladeildinni í handbolta í kvöld.

Ólafur Guðmundsson var markahæstur hjá toppliði Kristianstad í tíu marka sigri á Önnereds HK, 31-21. Kristianstad er í toppsætinu með 19 stig eftir ellefu leiki.

Lærisveinar Kristjáns Andréssonar hjá Eskilstuna Guif unnu 31-24 heimasigur á Redbergslids IK. Heimir Óli Heimisson skoraði tvö mörk fyrir Guif en Aron Rafn Eðvarðsson var ekki á leikskýrslu hjá liðinu í kvöld.

Guif situr í 6. sæti deildarinnar með 12 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×