Vidal sá um FCK Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. nóvember 2013 15:39 Nordic Photos / Getty Images
Arturo Vidal skoraði öll þrjú mörk Juventus í mikilvægum 3-1 sigri liðsins á FC Kaupmannahöfn í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Danirnir eru fyrir vikið úr leik í baráttunni um sæti í 16-liða úrslitunum. Vidal, sem er landsliðsmaður frá Sile, kom Juventus yfir í fyrri hálfleik með marki úr vítaspyrnu en Olof Mellberg, fyrrum leikmaður Juventus, jafnaði metin fyrir Danina í upphafi þess síðari eftir undirbúning Ragnars Sigurðssonar. Vidal tók þá aftur við keflinu og skoraði tvö mörk á tveggja mínútna kafla, það fyrra af vítapunktinum. Ragnar Sigurðsson og Rúrik Gíslason léku báðir allan leikinn í liði FCK sem er nú með fjögur stig, rétt eins og Galatasaray sem tapaði fyrir Real Madrid á Spáni, 4-1. Ragnar komst nálægt því að skora í leiknum í kvöld í stöðunni 1-0, skömmu áður en Mellberg jafnaði. Galatasaray og Juventus mætast í lokaumferð riðlakeppninnar og verður það hreinn úrslitaleikur um annað sætið í riðlinum. Juventus dugir jafntefli til að komast áfram í 16-liða úrslitin. FCK getur jafnað annað hvort liðið að stigum með sigri á Real Madrid í lokaumferðinni en verður aldrei ofar en í þriðja sæti, sem veitir þátttökurétt í Evrópudeild UEFA eftir áramót.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Enski boltinn „Stundum þarf maður heppni“ Enski boltinn „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Enski boltinn Viktor Bjarki skoraði enn eitt markið Fótbolti Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Enski boltinn Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Körfubolti Elsti maðurinn til að vinna leik á HM í pílu Sport Fleiri fréttir Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Tómas Bent og félagar með sex stiga forystu á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Evrópumeistararnir í vandræðum með botnliðið Raphinha reddaði málunum fyrir Börsunga Brynjólfur með langþráð mark Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Viktor Bjarki skoraði enn eitt markið Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik „Kannski áttum við heppnina skilið í dag“ „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ „Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki“ Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Cecilía fagnaði stórsigri gegn erkifjendunum Vigdís Lilja lét toppsætið af hendi Palmer skoraði í fyrsta sinn síðan í september Katla í markaskónum og Ingibjörg hélt hreinu Stöngin inn hjá Ásdísi skilaði sigri Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Dýrmætur tími með börnunum áður en alvaran tekur við Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Varalesturinn flæktist fyrir þýska tvíeykinu „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Þjálfari meistaranna á hálum ís Sjá meira