Handbolti

Gunnar Steinn og Snorri Steinn markahæstir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson í leik með íslenska landsliðinu.
Snorri Steinn Guðjónsson í leik með íslenska landsliðinu. Nordicphotos/Getty
Landsliðsmaðurinn Snorri Steinn Guðjónsson skoraði sjö mörk fyrir GOG Håndbold í 31-25 sigri á Skive í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

GOG hefur nú 18 stig líkt og SönderjyskE og Tvis Holstebro í 5.-7. sæti deildarinnar. Næsti leikur liðsins er á heimavelli gegn Nordjælland á laugardaginn eftir viku.

Gunnar Steinn Jónsson skoraði fjögur mörk fyrir Nantes sem vann 24-23 sigur á Elverum í EHF bikarnum. Franska liðið vann sjö marka sigur í fyrri leiknum og því átta marka sigur samanlagt.

Gunnar Steinn virðist vera að ná sér vel á strik eftir erfið meiðsli. Nantes hefur því tryggt sér sæti í riðlakeppni keppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×