Handbolti

Hreint ótrúlegt mark hjá Guðjóni Val | Myndband

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði eitthvert ótrúlegasta mark sem sést hefur í þýsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Hornamaðurinn skoraði sjö mörk í 38-25 sigri Kiel á Lemgo í gærkvöldi. Eitt markið fer í sögubækurnar. Þá stóðu Guðjón Valur og félagar vaktina í vörninni en liðsmenn Lemgo höfðu tekið markvörðinn af velli til að bæta við manni í sóknina.

Eins og svo oft áður segja myndir meira en mörg orð en enginn ætti að sleppa því að kíkja á markið magnaða. Það má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×