Handbolti

Lið Erlings öruggt í meistaraumspilið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Erlingur er hér til vinstri.
Erlingur er hér til vinstri. Mynd/Vilhelm
Westwien, lið Erlings Richardssonar, vann góðan sigur á Fivers, 31-29, í austurrísku úrvalsdeildinni í dag.

Westwien deilir nú þriðja sæti deildarinnar með Bregenz, liði Geirs Sveinssonar, sem vann öruggan sigur á Bärnbach/Köflach í gær, 36-27.

Bæði lið eru örugg áfram í meistaraumspilið en eftir áramót verður deildinni skipt í tvennt. Fimm efstu liðin spila um meistaratitilinn en fimm neðstu berjast um að forðast fallið.

Eftir rólega byrjun í haust hefur Westwien náð sér vel á strik undir stjórn Erlings og er nú aðeins fjórum stigum á eftir toppliði Alpla Hard.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×