Handbolti

Fullt hús hjá lærimeyjum Þóris

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þórir Hergeirsson.
Þórir Hergeirsson. Nordicphotos/Getty
Heimsmeistarar Noregs luku leik í riðlakeppni HM í Serbíu í kvöld með fimm marka sigri á Póllandi. Danir töpuðu gegn Brasilíu sem tryggðu sér sigur í B-riðli.

Noregur mætir Tékkum í 16-liða úrslitum á mánudag. Efstu fjórar þjóðirnar úr hverjum riðli tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum. Hér að neðan má sjá hvaða þjóðir mætast:

Leikir á sunnudag:

Þýskaland - Angóla

Danmörk - Svartfjallaland

Pólland - Rúmenía

Frakkland - Japan

Leikir á mánudag:

Ungverjaland - spánn

Brasilía - Holland

Noregur - Tékkland

Suður-Kórea - Serbía

Úrslit dagsins:

Túnis 24-15 Ástralía

Argentína 25-15 Paragvæ

Japan 32-23 Alsír

Lýðveldið Kongó 23-22 Dóminíska lýðveldið

Ungverjaland 26-27 Þýskaland

Angóla 21-30 Spánn

Serbía 32-18 Kína

Frakkland 27-22 Suður-Kórea

Rúmenía 29-23 Tékkland

Noregur 23-18 Pólland

Danmörk 18-23 Brasilía

Svartfjallaland 27-25 Holland




Fleiri fréttir

Sjá meira


×