Handbolti

Rúnar og félagar í fríið með bros á vör

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rúnar Kárason.
Rúnar Kárason.
Rúnar Kárason skoraði þrjú mörk þegar að lið hans, Hannover-Burgdorf, vann góðan sigur á Göppingen í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Hannover-Burgdorf vann leikinn, 30-29, en vinstri hornamaðurinn Lars Lehnhoff fór á kostum og skoraði fjórtán mörk. Hannover-Burgdorf hafði fjögurra marka forystu í hálfleik, 19-15.

Nú verður gert hlé á deildinni fram yfir Evrópumeistaramótið sem hefst í Danmörku eftir rúmar tvær vikur. Eftir 20 umferðir er Hannover-Burgdorf í sjöunda sæti deildarinnar með 22 stig.

Kiel er á toppnum með 36 stig, tveimur meira en Flensburg. Rhein-Neckar Löwen og Hamburg eru með 31 stig og Füchse Berlin 30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×