Handbolti

Teljum uppsögnina ólögmæta

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Óvíst er hvort Kári muni aftur klæðast hinum græna búningi Wetzlar í Þýskalandi.
Óvíst er hvort Kári muni aftur klæðast hinum græna búningi Wetzlar í Þýskalandi. Nordic Photos / Getty Images
Ekki sér enn fyrir endann á máli landsliðsmannsins Kára Kristjáns Kristjánssonar og Wetzlar, félagsliðs hans í Þýskalandi. Kári lét á það reyna í gær að mæta á æfingu eins og hann átti upphaflega að gera en Björn Seipp, framkvæmdastjóri félagsins, vísaði honum frá. Kári vildi ekki tjá sig um málið við Fréttablaðið en vísaði á lögfræðing sinn, Stephen Pfeiffer.

Forsaga málsins er sú að Kári Kristján lék með íslenska landsliðinu gegn Slóveníu ytra í síðustu viku. Ísland vann leikinn og spilaði Kári stórt hlutverk á lokamínútunum, er Ísland tryggði sér sigur.

Sakaði Kára um blekkingar

Daginn eftir leikinn bárust fregnir af því í gegnum þýska fjölmiðla að Kára Kristjáni hefði verið sagt upp hjá Wetzlar, þar sem hann hefði gerst sekur um samningsbrot. Kári hefði verið skráður á sjúkralista félagsins til 4. apríl og mætti samkvæmt læknisráði ekki keppa fyrr en í fyrsta lagi 2-3 vikum síðar.

HSÍ og Kári svöruðu með yfirlýsingu um að leikmaðurinn hefði fengið leyfi frá tveimur læknum Wetzlar til að taka sig af sjúkralistanum, svo hann gæti spilað með íslenska landsliðinu. Seipp segir það ósatt og sakaði í fyrradag Kára um að hafa blekkt sig, þjálfara og lækna félagsins. Þetta gerði hann í langri yfirlýsingu sem birtist á heimasíðu félagsins en Seipp gekk mjög hart fram og staðhæfði til að mynda að Kári hefði stofnað lífi sínu í hættu með því að spila umræddan landsleik.

Viljum finna lausn á málinu

Pfeiffer sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að málið væri enn á viðkvæmu stigi. „Við göngum út frá því að um misskilning hafi verið að ræða. Við teljum enn fremur að uppsögnin muni ekki standast lög og sé því ógild," segir Pfeiffer og sagðist ekki vilja veita frekari upplýsingar um næstu skref í málinu að svo stöddu.

„Við vonum fyrst og fremst að hægt verði að finna lausn á þessu máli sem verði bæði íþróttinni og Kára sjálfum til heilla. Ef þetta verður að dómsmáli munum við skýra frá málstað okkar í dómsalnum," segir Pfeiffer.

Kári Kristján var samningsbundinn Wetzlar til loka þessa tímabils en fyrr í vetur gekk hann frá samningi við danska liðið Bjerringbro/Silkeborg og mun hann halda til Danmerkur í sumar.

Hann hefur ekkert spilað með Wetzlar síðan í febrúar en þá gekkst hann undir aðgerð á baki þar sem góðkynja æxli var fjarlægt.

Sportið á Vísi er á Facebook. Fylgstu með.


Tengdar fréttir

Kára meinaður aðgangur að æfingu hjá Wetzlar

Landsliðsmaðurinn Kári Kristján Kristjánsson lét sjá sig á æfingu hjá Wetzlar í morgun. Hann hafði lýst því yfir að hann myndi gera það þó svo félagið væri búið að reka hann.

Rekinn frá Wetzlar

Þýska úrvalsdeildarfélagið Wetzlar rak landsliðsmanninn Kára Kristján Kristjánsson frá félaginu í gær. Félagið segir Kára hafa gerst sekan um brot á samningi við félagið og þess vegna hafi félagið ákveðið að segja upp samningnum.

Gæti reynst fordæmisgefandi

Kári Kristján Kristjánsson segist hafa spilað með íslenska landsliðinu í góðri trú eftir að hafa fengið leikheimild hjá læknum Wetzlar. Landsliðsþjálfarinn lýsir mikilli óánægju með vinnubrögð forráðamanna Wetzlar.

Fyrirliði Wetzlar orðlaus

Michael Müller, fyrirliði Wetzlar, lýsir mikilli furðu yfir þeirri ákvörðun Kára Kristjáns Kristjánssonar að spila með íslenska landsliðinu gegn Slóveníu í fyrradag.

Sorglegt hjá Wetzlar

Kári Kristján Kristjánsson vildi lítið tjá sig um nýjasta útspil framkvæmdastjóra Wetzlar sem sagði leikmanninn alfarið bera ábyrgð á þeirri röð atvika sem leiddi til þess að honum var sagt upp. Hann hefur sett málið í hendur lögfræðinga.

Lygi en ekki misskilningur hjá Kára

"Hvers vegna giftur tveggja barna faðir fórnar atvinnu sinni og jafnvel lífi til þess að spila landsleik finnst mér óskiljanlegt," segir Björn Seipp framkvæmdarstjóri þýska handknattleiksfélagsins Wetzlar.

Kári: Ég fékk skýrt já

Kári Kristján Kristjánsson segist hafa fengið skýr svör frá tveimur læknum hjá Wetzlar um að hann mætti spila með íslenska landsliðinu í Slóveníu.

HSÍ vissi ekki að Kári væri skráður á sjúkralista

Handknattleikssamband Íslands og Kári Kristján Kristjánsson sendu nú síðdegis frá sér yfirlýsingu vegna máls Kára. Hann var rekinn frá félagi sínu, Wetzlar, fyrir að hafa spilað landsleikinn gegn Slóveníu síðastliðinn miðvikudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×