Notar "brautartré á sterum“ sem dræver

Mickelson hafði notað Callaway X-Hot brautartréð sitt mikið og var farinn að slá jafnlangt með þeirri kylfu og hann er vanur að gera með drævernum. Hann talaði því við tæknideildina hjá Callaway og bað mennina þar um að útbúa fyrir sig trékylfu sem hann gæti notað sem dræver en væri jafn auðvelt að slá með og brautartré.
Útkoman er ný kylfa sem hefur hlotið nafnið FrankenWood og mun Mickelson nota hana í Masters-mótinu sem hefst í dag. Mickelson kveðst slá 15-22 metrum lengra með þessari nýju kylfu en gamla drævernum. Það gæti skipt sköpum enda skiptir högglengd miklu máli á Augusta National-vellinum þar sem Mickelson hefur þrisvar staðið uppi sem sigurvegari.
Bein útsending frá fyrsta keppnisdegi á Masters hófst klukkan 19 á Stöð 2 Sport & HD.
Tengdar fréttir

Búist við gífurlega hröðum flötum
Þorsteinn Hallgrímsson og myndatökumaðurinn Friðrik Þór Halldórsson hafa undanfarna daga dvalið í Georgíu og fylgst með aðdraganda Masters-mótsins á Augusta National-vellinum.

Tiger eða Sergio Garcia munu klæðast græna jakkanum
Körfuknattleiksmaðurinn Páll Axel Vilbergsson hefur mesta trú á því að Tiger Woods fari með sigur á Masters. Gunnar Hanson tippar á sigur Spánverjans Sergio Garcia.

Kemur fyrsti skandinavíski sigurinn í ár?
Kylfingar frá Skandinavíu hafa aldrei sigrað í einu af risamótunum fjórum sem haldin eru árlega.

Tiger eða Dustin vinna Masters
Ólafur Björn Loftsson telur að Tiger Woods fari með sigur í fimmta skipti á Masters. Fjölmiðlamaðurinn Heimir Karlsson telur hins vegar að Dustin Johnson muni koma, sjá og sigra.

Klæðist heilsuhraustur Tiger græna jakkanum í fimmta sinn?
Tiger Woods er sá kylfingur sem flestir veðja á í aðdraganda Masters-mótsins í ár. Hann er á ný í efsta sæti heimslistans í golfi eftir að hafa unnið þrjú mót í PGA-mótaröðinni í ár og er í góðu formi fyrir fyrsta risamót ársins.

14 ára undrabarn leikur á Masters
Fjórtán ára gamall drengur frá Kína mun skrá nafn sitt í metabækurnar á Masters-mótinu í ár þegar hann verður yngsti kylfingurinn í sögu mótsins til að taka þátt.

Bauð upp á kjúkling
Ein af hefðum Masters-mótsins er kvöldverður meistaranna en þar koma saman fyrrverandi sigurvegarar í mótinu og snæða saman.

Potter yngri sigraði en Wozniacki stal senunni
Bandaríkjamaðurinn Ted Potter Jr. kom, sá og sigraði í hinni árlegu par 3 keppni sem fram fer daginn fyrir Masters-mótið í golfi.