Hasar og spilling 13. júní 2013 15:00
Michael Bay leikstýrir hasarmyndinni Pain & Gain sem frumsýnd var á dögunum, en myndin er byggð á sannri sögu sem kom út árið 1999. Kvikmyndin segir frá þremur líkamsræktarfrömuðum sem flækja sig í mannrán og fjárkúgun þar sem allt fer úrskeiðis. Það er stórleikarinn Mark Wahlberg sem fer með aðalhlutverkið en hann leikur Daniel Lugo, fyrrverandi fanga sem vinnur í líkamsræktarstöðinni Sun Gym ásamt besta vini sínum, Adrian, sem leikinn er af Anthony Mackie. Í líkamsræktarstöðina mætir hinn forríki og spillti viðskiptajöfur Victor Kershaw. Þeir Daniel og Adrian eru tilbúnir að gera allt til að láta drauma sína rætast og þegar þeim stendur til boða að fremja mannrán til að koma sér áfram í heiminum hika þeir ekki. Þeir leggja á ráðin um að ræna Kershaw en eins og svo margoft áður fara hlutirnir ekki á réttan veg. Leikstjórinn Michael Bay er þekktur fyrir að senda frá sér stórmyndir, stútfullar af tæknibrellum, og leikstýrði meðal annars Armageddon, Pearl Harbor og Transformers-myndunum sem allar skiluðu gríðarlegum hagnaði. Það verður því spennandi að sjá hvort Pain & Gain muni gera slíkt hið sama.
Mest lesið Íslensku tónlistarverðlaunin: Damon Albarn lét óvænt sjá sig Tónlist Skálað fyrir skíthræddri Unni Menning Ástin blómstrar hjá Steinunni Lífið Stormur fellur á prófinu Gagnrýni Miðpunktur kvöldsins í gegnsæjum samfestingi á árshátíð RÚV Lífið Foreldrar mæti með lögfræðing með sér í skólann Lífið Stórafmælið hefur afleiðingar Lífið Skaust fyrr af æfingu og sótti milljónir í verðlaunafé Lífið Ástin spyr ekki um aldur hjá þessum pörum Lífið „Sagði börnunum að vondur maður hefði meitt mömmu“ Áskorun Fleiri fréttir Anora sigurvegari á Óskarnum Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein Snerting, Ljósbrot og Ljósvíkingar bítast um Edduna Bezos bolar Broccoli burt frá Bond Næsti Dumbledore fundinn Bauð Bandaríkin velkomin í hóp konungsríkja Jóhannes Haukur fer mikinn í Marvel stiklu Svaraði kallinu frá Ben Stiller Ljósbrot hlaut aðalverðlaun í Gautaborg Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Sjá meira
Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein