Handbolti

Ólafur er Jordan handboltans

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ólafur Stefánsson hefur spilað 328 sinnum fyrir hönd Íslands og skorað 1.559 mörk. Hann er markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins og sá þriðji leikjahæsti.
Ólafur Stefánsson hefur spilað 328 sinnum fyrir hönd Íslands og skorað 1.559 mörk. Hann er markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins og sá þriðji leikjahæsti. Fréttablaðið/Anton
Íslenska landsliðið í handknattleik mætir því rúmenska annað kvöld í lokaleik liðsins í undankeppni Evrópumótsins sem fram fer í janúar í Danmörku.

Ísland hefur nú þegar tryggt sér sæti í keppninni og liðinu nægir jafntefli gegn Rúmenum til að tryggja sér sigur í riðlinum. „Leikurinn leggst bara mjög vel í mannskapinn,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsmaður.

„Við hlökkum allir mikið til, þetta verður bara rosaleg hátíð og án efa frábær stemmning í höllinni. Gildi leiksins og mikilvægi hans er kannski ekki aðalatriðið. Ég held bara að við sem lið viljum kveðja Ólaf eins og menn.“

Verðum gríðarlega einbeittir

Uppselt varð á leikinn á fimmtudaginn og því ljóst að bekkurinn verður þétt setinn. Í síðasta skipti fá landsmenn að fylgjast með fremsta handknattleiksmanni Íslandssögunnar á fjölum Laugardalshallar.

Ísland tapaði illa 29-23 fyrir Hvít-Rússum á miðvikudaginn og sá liðið aldrei til sólar í leiknum. Meiðsli lykilmanna þýðir að aðrir þurfa að axla ábyrgð. Þeir fengu tækifæri til að sanna sig í Minsk en fæstir nýttu sér það.

„Við ætlum að sýna okkar rétta andlit á sunnudaginn og eitthvað allt annað en í Hvíta-Rússlandi. Við erum allir gríðarlega einbeittir fyrir þessum leik og menn ætla bara að njóta þess að taka þátt í honum. Það er mikill heiður.“

Áhrif Ólafs ólýsanleg

Ólafur Stefánsson hefur unnið allt sem hægt er að vinna með félagsliðum sínum. Hann hefur verið leiðtogi íslenska landsliðsins í meira en áratug og unnið með því silfur á Ólympíuleikunum í Peking 2008 og bronsverðlaun á Evrópumótinu í Austurríki árið 2010.

„Ég þyrfti langan tíma til að skýra út hversu mikla þýðingu Ólafur hefur haft fyrir landsliðið og íslenskan handknattleik. Það er í raun ólýsanlegt hversu mikil áhrif hann hefur haft á okkur alla í landsliðinu. Hann hafði alltaf trú á okkur öllum og var aldrei í neinum vafa um okkar getu. Það lyftir manni upp á annað stig þegar maður eins og Ólafur Stefánsson hefur trú á manni,“ segir Snorri.

„Ég persónulega var það heppinn að fá að spila tvö tímabil með honum erlendis og hann hefur hjálpað mér á fleiri vígstöðvum en bara inni á handboltavellinum.“

Sá besti frá upphafi

Þótt Ólafur hafi aldrei unnið til gullverðlauna með landsliðinu hefur hann unnið til stærstu verðlauna í evrópskum handbolta með félagsliðum sínum. Fjórum sinnum varð hann Evrópumeistari auk þess að verða landsmeistari í Þýskalandi, Spáni og Danmörku auk Íslands. Þá varð hann katarskur meistari með liði sínu á dögunum.

„Fólk kannski gerir sér ekki almennilega grein fyrir því hvað hann hefur afrekað sem leikmaður á sínum ferli og þá hversu lengi hann var í algjörum heimsklassa. Hann er besti handknattleikmaður allra tíma og það segi ég ekki aðeins vegna þess að ég er Íslendingur. Samherjar mínir erlendis eru á sama máli,“ segir Snorri.

Þegar leikstjórnandinn er beðinn um að setja örvhentu skyttuna á stall með fremstu íþróttamönnum sögunnar í öðrum íþróttagreinum segir Snorri: „Ólafur Stefánsson er Michael Jordan handboltans og það verður líklega aldrei neinn annar eins og hann.“

Leikur Íslands og Rúmeníu hefst á sunnudagskvöldið klukkan 19.45. Hann verður í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×