Alþingislimrur Sif Sigmarsdóttir skrifar 17. júlí 2013 07:00 Sigmundur Davíð hét drengur en þjóð sinni þóttist hann fengur. Hann drakk Mountain Dew, saug íslenska kú og Jónas frá Hriflu hel-kengur. Þótt skammstafanirnar ei skildi hann útlendingana ei vildi Ekkert E og ESS BÉ eða A GÉ ESS fé. Aðeins íslenska aurinn hann þyldi. Hann þjóðsönginn baulaði bráðvel er fingurinn fetti til Brussel. Svo lofað'ann öllum konum og köllum ávísun fínni sem flauel. Á Bessastöðunum bjó búkarl sem taldi sig stakasta stórjarl. Valdsprota veifaði og Sigmund hann blessaði er át kynhreinan mjúkís í kvöldsnarl. En keisarinn klæddist ei neinu því fjárkistan var öll í kleinu. Heimilin biðu er stjórnvöld þeim riðu. En vinum þau veitt' ekki skeinu. Hádegismóum í hann Davíð spann upp á nýtt fagra fortíð. ELL, Í og Ú hann var eins og frú sem tottaði húsbóndann taumþýð. Bjarni hét strengja hans brúða sem sýnd' af sér hollustu prúða. Sjálfstæðismenn yrðu nú senn allt innan ríkis herbúða. Dómarar, herrar og hirðmenn, ambassadorar og amtmenn. Bitlingahaf í bólakaf færð' alla trúfasta flokksmenn. Fjöllin og fossa og læki þeir fengu að gjöf gegnum klæki. Silfrið í sæ þeir hirtu sem hræ og hunsuðu skrílsins hópskræki. Umhverfisráðherra sjálfan sig harður skar niður um hálfan. Allt átt' að virkja en ekkert að yrkja svo brúnirnar hóf öll heimsálfan. Útlanda ráðherra, smalinn var náskyldur Söru Palin. Hann kunn? ekki ensku né aðra útlensku og vild' ekki skilja við dalinn. Stjórnarandstaða með veggjum læddist á veikburða leggjum. Árni Páll datt en Steingrímur hratt hyglaði héraðs flokksseggjum. Píratar, þings gúddí gæjar, vildu gagnageymslurnar gegnsæjar, veraldarvef og ekkert þref. Þá í kviklega fingurna klæjar. En Alþingi vild' engu breyta og virðingu vanans varðveita. Moska, nei takk Snowden, oj bjakk. Hvorki Kana né kirkju áreita. Nú þingheimur farinn í frí er svo rekur á reið' okkar útsker. Á blautri baðströnd þjóðin með önd í hálsinum bíður á bömmer. Ég fær' ykkur ambögu þessa að skilnaði, pen sem loftpressa. Í bili ég kveð er barni út treð. Með haustinu aftur mun messa. Pistlahöfundur heldur nú í barneignarleyfi og kveður því að sinni. Lesendum er þökkuð samfylgdin síðustu ár. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sif Sigmarsdóttir Mest lesið Halldór 10.05.2025 Halldór Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu Þórður Snær Júlíusson Skoðun Þétting í þágu hverra? Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun Úlfar sem forðast sól! Jóna Guðbjörg Árnadóttir Skoðun Hver á auðlindir Íslands? – Kallar á nýja og skýra löggjöf Einar G. Harðarson Skoðun Hann valdi sér nafnið Leó Bjarni Karlsson Skoðun Byggðalína eða Borgarlína Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Til hvers þá að segja satt? Pólitískt baktjaldamakk og upplýsingafölsun í Suðurnesjabæ Ari Gylfason Skoðun Hvenær er nóg nóg? Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Misskilin sjálfsmynd Finnur Thorlacius Eiríksson Skoðun
Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu Þórður Snær Júlíusson Skoðun
Til hvers þá að segja satt? Pólitískt baktjaldamakk og upplýsingafölsun í Suðurnesjabæ Ari Gylfason Skoðun
Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu Þórður Snær Júlíusson Skoðun
Til hvers þá að segja satt? Pólitískt baktjaldamakk og upplýsingafölsun í Suðurnesjabæ Ari Gylfason Skoðun