„Það má gera ráð fyrir því að sum laganna verði sett í nýjan búning með tilkomu Agent Fresco. Hugmyndin um að hafa lifandi hljómsveit í stað plötusnúða tíðkast víða erlendis og mér þótti spennandi hugmyndin að fá lifandi sveit með Gauta og Úlfi Úlfi,“ segir Friðrik Salvar Bjarnason, skipuleggjandi tónleikanna.
Hann segir hugmyndina að þeim hafa sprottið upp snemma á þessu ári og í kjölfarið hafi hann sótt um styrk. „Við fengum styrk frá Ýli, sem er tónlistarsjóður Hörpu og styrkir unga listamenn í framkvæmdahug, og hefðum við ekki getað framkvæmt þetta án þess að fá styrk.“
Friðrik lofar glæsilegum tónleikum, enda er það ekki á hverjum degi sem þessir ólíku en hæfileikaríku menn troða upp saman.