Gísli, Eiríkur og Helgi Halldór Halldórsson skrifar 26. september 2013 06:00 Gísli Marteinn Baldursson ætlar að yfirgefa stjórnmál – í bili. Skoðanir hans rúmast ekki innan Sjálfstæðisflokksins. Mögulega er ekki einu sinni pláss fyrir þær innan borgarmálanna almennt. Skoðanir Gísla Marteins – í stóru málunum almennt eru settar fram af skynsemi og yfirvegun. Þetta eru yfirleitt mjög faglega hanteraðar skoðanir og stefnumál, byggðar á innsýn, menntun, reynslu, ást á Reykjavík og ást á borgarhugtakinu almennt. Að það skuli ekki vera pláss fyrir þessar skoðanir innan Sjálfstæðisflokksins er sorglegt – ef það er ekki pláss fyrir þær innan borgarstjórnarinnar er það óhugnanlegt. Við höfum pláss fyrir allt pípið í Vigdísi Hauksdóttur og samsæriskenningar Framsóknarmanna almennt. Við höfum pláss fyrir innihaldslaust gelt og gaul og framapot – en ekki skoðanir og baráttumál sem teygja sig skör ofar en hin almenna tækifærismennska sem einkennt hefur íslensk stjórnmál frá því við fórum að kalla Ísland lýðræðisríki. Fyrir mann eins og mig, sem er alinn upp af tveimur allaböllum í Mosfellsdalnum, þá var Gísli Marteinn síðasti móhíkani Sjálfstæðismanna. Hann er virkilega viðkunnanlegur náungi líka – kannski ágætt að hann dagi ekki upp í þessu flagi sem stjórnmál á Íslandi eru. Að sama skapi vil ég ekki að Jón Gnarr fari aftur fram. Sem ókjörinn og eigingjarn fulltrúi Grínverjahrepps verð ég að segja: við söknum þín maður, hættu að að borgarstjórast og komdu aftur að djóka. Þegar Jón Gnarr fór í framboð fannst mér það virkilega flott skref. Eins og kaninn segir, „if you can‘t beat them – join them“. Hann var kominn með leiða á að gera grín að ástandinu og gagnrýna það og vildi heldur taka þátt, reyna að breyta. Ég held að Gísli hafi gengið í gegnum sömu krísu, fengið leiða á að taka þátt og heldur viljað gagnrýna og gera grín. Mér finnst virkilega flott skref hjá Gísla Marteini að ætla að stjórna pólitískum umræðuþætti á RÚV. Kaninn á annan frasa, „if you can‘t beat them – eat them“. Gísli, ég hlakka til að sjá þig grilla þessa helvítis gelti í beinni! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Halldór Halldórsson, Dóri DNA Mest lesið Ísrael á ekki heima á gleðileikum evrópskra sjónvarpsstöðva sem starfa í almannaþágu Stefán Jón Hafstein Skoðun Mótum framtíðina saman Jónína Hauksdóttir ,Magnús Þór Jónsson Skoðun Íslenskir flóttamenn - í okkar eigin landi Gunnar Magnús Diego Skoðun Samræmd nálgun að öryggi og skilvirkni á ytri landamærum - Innleiðing EES á Íslandi Arngrímur Guðmundsson Skoðun Er Evrópa á villigötum? Efnahagsleg hnignun kallar á róttæka endurskoðun Eggert Sigurbergsson Skoðun Eru vegir fyrir ferðamenn mikilvægari en vegir fyrir fólk sem býr hér? Petrína Þórunn Jónsdóttir Skoðun Magga Stína! Helga Völundardóttir Skoðun Halldór 4.10.2025 Halldór 7 milljarða húsnæðisstuðningur afnuminn… en hvað kemur í staðinn? Vilhjálmur Hilmarsson Skoðun Transumræðan og ruglið um fjölda kynja Einar Steingrímsson Skoðun
Ísrael á ekki heima á gleðileikum evrópskra sjónvarpsstöðva sem starfa í almannaþágu Stefán Jón Hafstein Skoðun
Samræmd nálgun að öryggi og skilvirkni á ytri landamærum - Innleiðing EES á Íslandi Arngrímur Guðmundsson Skoðun
Er Evrópa á villigötum? Efnahagsleg hnignun kallar á róttæka endurskoðun Eggert Sigurbergsson Skoðun
Eru vegir fyrir ferðamenn mikilvægari en vegir fyrir fólk sem býr hér? Petrína Þórunn Jónsdóttir Skoðun
Ísrael á ekki heima á gleðileikum evrópskra sjónvarpsstöðva sem starfa í almannaþágu Stefán Jón Hafstein Skoðun
Samræmd nálgun að öryggi og skilvirkni á ytri landamærum - Innleiðing EES á Íslandi Arngrímur Guðmundsson Skoðun
Er Evrópa á villigötum? Efnahagsleg hnignun kallar á róttæka endurskoðun Eggert Sigurbergsson Skoðun
Eru vegir fyrir ferðamenn mikilvægari en vegir fyrir fólk sem býr hér? Petrína Þórunn Jónsdóttir Skoðun