Vináttan er vegurinn til lífsins Ólöf Skaftadóttir skrifar 18. október 2013 11:00 Skrímslið litla systir mín. Helga Arnalds, höfundur bókarinnar, í hlutverki sínu í samnefndri leiksýningu. Myndir/Leikhúsið tíu fingur
Bækur: Skrímslið litla systir mín Saga:Helga ArnaldsMyndir:Björk BjarkadóttirTónlist:Eivör Pálsdóttir. Skrudda Skrímslið litla systir mín eftir Helgu Arnalds fjallar um fimm ára myrkfælinn strák, Bjart, sem eignast litla systur. Honum líst síður en svo á nýjustu viðbótina við fjölskylduna og líkir henni við skrímsli sem allt virðist eyðileggja. Hann fer í langt ferðalag um dimma skóga, alla leið á hjara veraldar, og hittir fyrir óvættir og alvöru skrímsli í þeim tilgangi að skila systur sinni sem mamma hans sagði að væri gjöf frá guði. Og á leiðinni lærir hann að elska litlu systur sína. Afbrýðisemi er algengt varnarviðbragð þegar barn þarf skyndilega að deila ást og athygli foreldra sinna með nýju barni og Skrímslið litla systir mín gerir því góð skil. Stóri bróðirinn þjáist af einmanaleik og höfnunarkennd en lærir svo að vináttan er vegurinn til lífsins. Bókin er fallega myndskreytt af Björk Bjarkadóttur og tónlist Eivarar Pálsdóttur er skemmtileg viðbót við vandaða bók. Eins og aðrar fyrsta flokks barnabækur höfðar bókin bæði til barna og fullorðinna. Það er ánægjulegt þegar ungir og aldnir hafa gaman af sömu bókinni. Samnefnd sýning var frumsýnd í Norræna húsinu í fyrra og hlaut Grímuverðlaun sem besta barnaleiksýningin.Niðurstaða: Vönduð og fallega framreidd barnabók með boðskap sem á erindi við marga.
Gagnrýni Mest lesið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið „Best að vera allsber úti í náttúrunni“ Tíska og hönnun Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Lífið Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Lífið Próteinbollur að hætti Gumma kíró Lífið „Pabbi minn vakir yfir mér“ Lífið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Lífið Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Lífið Fleiri fréttir Mömmustrákur skýtur uppvakningum ref fyrir rass Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Er Stalín listgagnrýnandi í Hörpu núna? Wardruna í vanda – þegar dulúðin náði ekki flugi Tom Cruise hrasar á síðasta snúning Messan sem var ekki tímamótaverk – en mig langaði samt til að gráta Sjá meira