Bestu og verstu plötuumslög ársins 30. nóvember 2013 09:00 .
Eins og venja er um þetta leyti árs leitaði Fréttablaðið til hóps valinkunnra andans manna og kvenna til að velta fyrir sér kostum og göllum við umslög íslenskra hljómplatna sem komið hafa út á árinu. Bestu umslög ársins 2013 1. sætiOjba Rasta – Einhvern veginn svona „Vel heppnað í alla staði. Grípandi list sem fær mann til að skoða. Bravó.“ - María Lilja Þrastardóttir „Margslunginn og sýrður ævintýraheimur í óendanlegum, stjörnufylltum himingeimi. Endalaust gaman að skoða. Skerpir glæsilega á „speisuðu döbbi“, tyrkneskri sýru og fleiru spennandi í hljóðheimi Ojba Rasta.“ - Jens Guð „Ragnar Fjalar Lárusson er að stimpla sig inn sem fjölhæfur og afkastamikill listamaður með litríkt stílbragð. Hér leikur hann sér fram og aftur með myndmálið; hinn innri mann, heilahvelin, náttúruna, alheiminn og sínusbylgjur. Passar eins og flís við rassinn á Ojba Rasta.“ - Arnór Bogason „Eins og í fyrra er boðið upp á frábært umslag á plötu Ojba Rasta. Í sama „80‘s overkill“-anda. Virkilega flott. Tvö lokuð augu og það þriðja galopið á enni er líka alltaf „winner“ hjá mér. - Jóhann Alfreð Kristinsson2. sætiDrangar - Drangar „Hér er mjög vel hugað að innihaldi. Innblásturinn er í takt við tónlistina og því er fylgt vel eftir í meðhöndlun leturs, efnisvali og litapallettu. Handverkið og nostrið nýtur sín vel og gripurinn er afskaplega eigulegur. Mig langar mikið frekar til að opna þetta umslag en skrolla eftir plötunni í Spotify.“ - Kristín Agnarsdóttir „Skemmtilega einfalt og svolítið út úr kú fyrir testósteróntröllin í hljómsveitinni. Hraundranga-leysið í smekklegri hönnuninni var góð ákvörðun.“ - Sunna Valgerðardóttir „Ég væri til í að ramma þetta umslag inn og hafa það uppi á vegg hjá mér. Ég get horft á það endalaust. Hið fullkomna umslag sem er ekki bara konfekt fyrir augað heldur lýsir tónlistinni líka svo vel. Frábært samspil tveggja listforma.“ - Lilja Katrín Gunnarsdóttir3. sætiDj flugvél og geimskip - Glamúr í geimnum „Glitrandi og hressandi umslag sem lýsir samtímanum vel.“ - Ólafía Svansdóttir „Flott mynd og fríkað fótósjopp. Það þarf víst að kunna reglurnar til þess að brjóta þær. Þetta er eins og remix af Silvíu Nótt – Goldmine-umslaginu sem kom út í góðærinu. Krúttlega kærulaust … eins og tónlistin.“ - Jói Kjartans4. sætiDr. Gunni og vinir hans - Alheimurinn! „Stórkostlegt, litfagurt, lifandi og fyndið umslag sem ungir og aldnir munu hrifsa til sín hugsunarlaust úr plöturekkunum fyrir jólin. Plata með svona útliti getur ekki verið annað en sú skemmtilegasta í öllum heiminum.“ - Kristinn Pálsson „Eitt orð: skemmtilegt.“ - Guðmundur Pétursson5. sætiEmilíana Torrini - Tookah „Skemmtilegt og galsafengið listaverk. Vangasvipur í svart-hvítri spegilmynd skreyttur með einföldum formum í möttum lit. Úr fjarlægð (eða með því að píra augun) birtist feitlagið andlit.“ - Jens Guð „Það er eitthvað svo dásamlega furðulegt við þetta umslag. Ég doka alltaf við þetta eins og Sledgehammer-myndband Peters Gabriel eða umslag Alan Parsons Project við Eye in the Sky-smáskífuna. Skrýtið á mjög jákvæðan hátt. Eins og flest sem er skrýtið reyndar.“ - Kristín AgnarsdóttirVerstu umslög ársins 20131. sæti Steinar - Beginning „Af hverju er þessi maður í þessari stellingu og með þennan svip? Er eitthvað að honum? Er honum illt?“ - Stígur Helgason „Svipurinn er svolítið eins og hann sé við það að átta sig á því að maðurinn sem hann var að opna fyrir er handrukkari.“ - Ölvir Gíslason„Bjóst við meiru frá vonarstjörnu Íslands í poppinu. Hugmyndasnautt og tilgerðarlegt í alla staði. Eins og tískuþáttur í menntaskólablaði.“ - Álfrún Pálsdóttir „Eftir fyrstu hlustun virðist sem svo að það hafi verið hent í plötu út af einum hittara. Mér sýnist einmitt líka hafa verið bara hent í umslag. Mjög sorglegt þar sem Steinar er ungur og upprennandi og því verð ég reið þegar ég sé þetta umslag. Á þetta að gera eitthvað fyrir einhvern?“ - Lilja Katrín Gunnarsdóttir2. sætiKaleo - Kaleo „Einstaklega ósexí. Á að hafa klassískt yfirbragð en tekst það ekki og verður fyrir vikið óspennandi og tilgerðarlegt.“ María Lilja Þrastardóttir„Gullblóm. Þetta er eins og bók og er mjög ljótt.“ - Guðmundur Pétursson3. sæti.Ólafur Arnalds - For Now I Am Winter „Ólafur horfir fjarrænn út í tómið með íslensku náttúruna inni í sér. Allt mjög íslenskt og klisjukennt með smá snert af velgju.“ - Ólafía Svansdóttir „Brimrótið er INNI Í honum. Ég skil. Djúpt. Eða eitthvað.“ - Stígur Helgason4. sætiÓlöf Arnalds - Sudden Elevation „Þótti þetta í alvöru svona góð mynd að það þyrfti að nota hana fjórum sinnum? Þetta er eins og amma hafi komist í Photoshop.“ - Stígur Helgason „Hugmyndin er óskiljanleg og hönnunin á ekkert skylt við titil plötunnar. Og þó að Ólöf sé vissulega fögur eru fjögur andlit í þessu tilviki þremur of mörg.“ - Sunna Valgerðardóttir 5. sætiÝmsir flytjendur - Einnar nætur gaman með Sigga Hlö „Ég efast ekki um að valið á „one hit wonder“-slögurum sé traust hjá Sigga. En undir titlinum Einnar nætur gaman og við undirtitilinn 57 sjóðheit lög undir einni sæng er mynd af Sigga þar sem ég veit ekki hvort hann ætli í mann eða langi í mann. Þetta er samt eiginlega uppáhaldsumslagið mitt líka.“ - Jóhann Alfreð Kristinsson „Hreinræktaður óhugnaður. Þessi maður hefur ekkert gott í hyggju.“ - Ölvir Gíslason Umdeildasta umslagið 2013Mammút - Komdu til mín svarta systirJafnmörgum þótti umslagið gott og slæmt. „Gersamlega tryllt framsetning og útlitið svo órætt í allri sinni afstæðu fegurð. Myndin vekur umsvifalausa forvitni en samt er eins og maður vilji ekki vita hvað er að gerast á henni.“ - Kristinn Pálsson „Eitthvað mjög óþægilegt við þessa mynd.“ - Álfrún Pálsdóttir „Ég veit ekki almennilega hvað ég er að horfa á, en á einhvern pervertískan hátt líkar mér það.“ - Stígur Helgason „Með furðulegri koverum sem ég hef séð. Leiðinlegt þar sem platan er svo fín. Reyndar fékk það mig til þess að taka plötuna upp og rýna framan á hana sem ég hefði alla jafna ekki gert. Mér sýndist þetta nefnilega vera einhvers konar vansköpuð kartafla að spíra.“ - María Lilja ÞrastardóttirÁlitsgjafar:Arnór Bogason, grafískur hönnuðurÁlfrún Pálsdóttir, blaðamaðurBerti Andrésson, tónlistaráhugamaðurGuðmundur Pétursson, grafískur hönnuðurJens Guð, grafískur hönnuðurJóhann Alfreð Kristinsson, grínistiJói Kjartans, ljósmyndariKristinn Pálsson, tónlistaráhugamaðurKristín Agnarsdóttir, grafískur hönnuðurLilja Katrín Gunnarsdóttir, blaðamaðurMaría Lilja Þrastardóttir, fréttamaðurÓlafía Svansdóttir, bóksaliStígur Helgason, blaðamaðurSunna Valgerðardóttir, fréttamaðurTryggvi Hilmarsson, grafískur hönnuðurÞórður Helgi Þórðarson, útvarpsmaðurÖlvir Gíslason, þýðandi
Mest lesið Hundruðum svekktra tónleikagesta vísað frá Hvalasafninu Lífið Tengdadóttir forsætisráðherra í innsta koppi Loftssystkina Lífið „Er ekki að fara fram á það lifa lífinu í bómull“ Lífið Skellti sér á djammið Lífið Tengdó hringdi og vildi vita hvort Sunnu Dís hefði í alvöru liðið svona Lífið Fáir sáu íslenskar bíómyndir sem fengu 350 milljónir króna í styrk Lífið Hafa bæði kvatt sín fyrrverandi og eru alsæl saman Lífið Heitasti plötusnúður í heimi í Melabúðinni Lífið „Getur líka fengið Óskarsverðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki“ Lífið Segir fjölskylduna flutta Lífið Fleiri fréttir HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi „Enginn þekkir mig og ég þekki engan, sem mér finnst þægilegt“ Laufey fagnaði með Oliviu Rodrigo og Chappell Roan Tileinkar lagið Grindvíkingum „Það hefur aldrei verið neinn ótti“ „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ „Þetta er saga af villigötum“ „Enginn að fara að hringja í mig að fyrra bragði“ Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Space Odyssey opnar á nýjum stað Dr. Gunni spyr hvort það sé ekki bara búið að vera gaman Afhjúpað á hvaða dögum böndin spila á Airwaves Sjá meira