Körfubolti

Jakob og Hlynur öflugir í sigurleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jakob Örn og Hlynur.
Jakob Örn og Hlynur. Vísir/Valli
Sundsvall Dragons vann í kvöld sigur á botnliði Örebro, 94-79, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Drekarnir náðu forystu um miðjan annan leikhluta og létu forysuna aldrei af hendi eftir það.

Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í liði Sundsvall með 26 stig en hann gaf þar að auki sex stoðsendingar. Hlynur Bæringsson skoraði þrettán stig og tók sautján fráköst. Ægir Þór Steinarsson lék ekki með Sundsvall vegna meiðsla.

Sundsvall er í þriðja sæti deildarinnar með 26 stig en Borås er efst með 44 stig. Södertälje kemur næst með 40 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×