235% verðmunur á rúðuvökva Finnur Thorlacius skrifar 7. febrúar 2014 16:35 Meðalverðið á rúðuvökva er 120 krónur en lægsta verð 51 króna.
FÍB hefur gert verðkönnun á rúðuvökva og reiknað út lítraverð miðað við -9 gráðu frostþol. Daginn sem verðkönnunin var framkvæmd var rúðuvökvinn sem fæst í Bauhaus á hagstæðasta verðinu eða 51 króna á lítra. Út frá frostþolsforsendunni er verðmunur milli dýrasta vökvans og þess ódýrasta 235 prósent. Meðalverðið á rúðuvökva í könnuninni er 120 krónur á lítra miðað við -9°C frostþol en sá dýrasti fæst hjá Olís og þar er lítraverðið 171 króna. Í samanburði við samskonar könnun sem FÍB framkvæmdi fyrir ári síðan þá hefur meðalverð á rúðuvökva lækkað um 4 krónur á lítra og ódýrasti vökvinn nú er 35 krónum ódýrari á lítra miðað við -9°C frostþol. Meginefnin í rúðuvökva eru vatn og spíri en blönduhlutföll þessara meginefna er nokkuð mismunandi frá einum framleiðanda til annars. Því er frostþolið að sama skapi mismunandi. Samkvæmt upplýsingum sem FÍB aflaði hjá efnafræðingi þarf að vita eðlisþyngd blöndunnar til að geta glöggvað sig á hlutfalli spíra og vatns í rúðuvökva og þar með frostþol vökvans. Eðlisþyngd vatns er 1. Það þýðir að einn lítri af vatni er eitt kíló að þyngd. Spíri (etanól og ísóprópanol) er léttari en vatnið og ef eðlisþyngd rúðuvökva er 0,98 er frostþol blöndunnar í kring um -3 gráður. En sé eðlisþyngd hennar 0,96 er frostþolið í kring um -17 gráður. Sé eðlisþyngdin 0,97 er frostþolið nokkurnveginn mitt í milli. Ýmis önnur efni, eins og sápa kunna að vera í rúðuvökva, en þau eru í það litlum mæli að þau breyta frostþolinu sáralítið til eða frá. Það er út frá þessum forsendum sem við höfum reiknað verð rúðuvökvanna til að neytendur geti fengið skýran verðsamanburð út frá einni og sömu forsendunni. Lægsta lítraverð rúðuvökva, sé ekki tekið tillit til frostþols, reyndist einnig vera hjá Bauhaus en frostþol hans -21°C. Hæsta lítraverðið á sama hátt var á rúðuvökva frá Húsasmiðjunni 375 krónur en sá vökvi þolir -22 stiga frost. Rúðuvökvinn frá Bauhaus sem reyndist á hagstæðasta verðinu miðað við frostþol, fæst í fimm lítra brúsum sem kosta 595 krónur. Frostþol vökvans í brúsunum er -21 gráður. Það jafngildir því að miðað við -9 gráðu frostþol er lítraverðið 51 króna.Segja má að -9 gráðu frostþol sé tæpast nægilegt. En það dugar nokkurnveginn á höfuðborgarsvæðinu þar sem fremur sjaldgæft er að frost verði mikið meira en það. Öðru máli gegnir hins vegar víða inn til landsins þar sem frost verða talsvert harðari oft á tíðum.Hér má sja´niðurstöðu könnunar FÍB.
Mest lesið Lögregla dreifði gjörbreyttri mynd af díselþjófum Innlent „Sjaldan hefur stjórnmálamaður verið hamflettur jafn rækilega“ Innlent „Það er rosalega ljótt að segja þetta en mér líður bara þannig“ Innlent Líkir aðferðum forstjóra Landsvirkjunnar við heimilisofbeldi Innlent Í áfalli eftir að hafa fengið bréf frá árásarmanninum inn um lúguna Erlent „Hef ekki hitt neinn arkitekt sem finnst þetta góð hugmynd“ Innlent Spáin versnar á ný og gul viðvörun í Eyjum Veður Lét högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Innlent Lögregla biðst afsökunar vegna myndarinnar Innlent Dregur í land og segir Starmer og félaga verðlauna Hamas Erlent