Handbolti

Öruggt hjá Kiel sem er áfram á toppnum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson er þrálátlega orðaður við spænska félagið Barcelona.
Guðjón Valur Sigurðsson er þrálátlega orðaður við spænska félagið Barcelona. Vísir/AFP
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk fyrir Kiel sem lagði Gummersbach 30-24 í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Leikurinn var jafn framan af en í sundur dró með liðunum eftir því sem á leið. Aron Pálmarsson skilaði sínu hjá Kiel en komst þó ekki á blað.

Kiel er í toppsæti deildarinnar með 38 stig. Flensburg getur náð 36 stigum með sigri á Rhein-Neckar Löwen annað kvöld. Verður leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport & HD.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×