Handbolti

Guif vann fimmta leikinn í röð

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Heimasíða Guif
Heimir Óli Heimisson átti fínan leik fyrir Guif í öruggum átján marka sigri á Rimbo í sænsku deildinni í handbolta í dag. Sigurinn í dag var sá fimmti í röð hjá Guif sem er á góðu skriði.

Guif leiddi með níu mörkum í hálfleik í stöðunni 20-11 og var sigurinn aldrei í hættu eftir það og lauk leiknum með 40-22 sigri Guif.

Heimir skilaði fjórum mörkum í leiknum ásamt því að næla sér í þrjú víti á meðan landi hans, Aron Rafn Eðvarðsson var hvíldur í leiknum í dag og fékk aðeins á sig eitt skot í leiknum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×