Arnór hafði betur á móti Ásgeiri og Róberti eftir vítakeppni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2014 20:17 Arnór Atlason. Vísir/AFP
Arnór Atlason getur orðið franskur bikarmeistari á morgun eftir ævintýralegan sigur Saint Raphael á stjörnuprýddu liði Paris St. Germain í undanúrslitum frönsku bikarkeppninnar í dag. Þetta var mikið uppgjör hjá íslenskum landsliðsmönnum því Róbert Gunnarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson voru í tapliðinu. Saint Raphael, er fjórum sætum neðar í töflunni, en sló PSG út í vítakeppni eftir að leikurinn endaði með 34-34 jafntefli. Arnór skoraði eitt mark úr tveimur skotum í leiknum auk þess að gefa eina stoðsendingu. Róbert Gunnarsson nýtti bæði skotin sín og Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði eitt mark úr fjórum skotum. Róbert skoraði í vítakeppninni alveg eins og Arnór. Danska stórskyttan Mikkel Hansen skoraði 13 mörk úr 18 skotum fyrir PSG í leiknum en það dugði ekki til. Landi hans Morten Olsen svaraði með 13 mörk úr 17 skotum og það var dýrmætt fyrir Saint Raphael liðið. Slavisa Djukanovic tryggði Saint Raphael sæti í bikarúrslitaleiknum með því að verja lokavítið frá Samuel Honrubia. Saint Raphael mætir Montpellier í bikarúrslitaleiknum á morgun en Montpellier vann 26-24 sigur á Dunkerque í hinum undanúrslitaleiknum.
Handbolti Mest lesið Sló átta ára dóttur sína eftir tap Sport Van Gerwen kemur trans konunni til varnar: „Þetta er svo sárt“ Sport Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Enski boltinn Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Enski boltinn Teitur spilaði með manni sem dekkaði Jordan og drakk kippu af bjór fyrir æfingar Körfubolti Gagnrýnir blaðamann sem gerði grín að útliti hennar Sport McIlroy skaut niður dróna Golf „Ég vil ekki deyja í sjúkrarúmi heldur í hringnum“ Sport Íslandsmeistarinn úr leik og þrettán ára gutti stal senunni Sport „Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“ Sport Fleiri fréttir Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Fram flaug áfram í bikarnum Sigurjón hættur með Gróttu Sjá meira