Handbolti

Kiel vann en Aron hvíldur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Filip Jicha í leik með Kiel.
Filip Jicha í leik með Kiel. Vísir/Getty
Kiel lenti ekki í teljandi vandræðum með portúgölsku meistarana í FC Porto Vitalis í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Kiel vann, 30-25, eftir að hafa verið 17-11 yfir í hálfleik. Kiel var þegar búið að tryggja sér efsta sæti riðilsins fyrir leikinn.

Aron Pálmarsson hefur verið að glíma við meiðsli í hné og var af þeim sökum hvíldur í kvöld. Guðjón Valur Sigurðsson var í leikmannahópi liðsins en skoraði ekki. Christian Zeitz skoraði sex mörk fyrir Kiel í leiknum.

Kiel varð þó fyrir áfalli snemma leiks þar sem hornamaðurinn Christian Sprenger meiddist á fæti. Í ljós kemur á morgun hvort meiðsli hans séu alvarleg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×