Handbolti

Jafnt hjá Kiel og Kielce í frábærum leik

Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. vísir/bongarts
Pólska liðið Kielce krækti í stig á hinum gríðarsterka heimavelli Kiel er liðin mættust þar í Meistaradeildinni í dag.

Lokatölur 28-28 í hreint frábærum leik. Bæði lið fengu tækifæri til þess að vinna leikinn undir lokin en allt kom fyrir ekki.

Kiel heldur toppsæti riðilsins og er búið að vinna hann þess utan. Kielce er í þriðja sæti og komið áfram í sextán liða úrslit.

Guðjón Valur Sigurðsson lék með Kiel í dag og skoraði tvö mörk. Þórir Ólafsson skoraði eitt mark fyrir Kielce. Aron Pálmarsson spilaði ekki með Kiel vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×