Handbolti

Sex mörk frá Ólafi í tapleik

Ólafur á EM.
Ólafur á EM. vísir/daníel
Ólafur Andrés Guðmundsson og félagar í sænska liðinu Kristianstad töpuðu, 27-26, gegn Alingsås í toppslag sænsku úrvalsdeildarinnar.

Alingsås leiddi með fimm mörkum í hálfleik, 15-10. Ólafur og félagar komu til baka en það dugði ekki til.

Ólafur Andrés var sem fyrr öflugur í liði Kristianstad en hann skoraði sex mörk í leiknum.

Kristianstad heldur toppsæti deildarinnar þrátt fyrir tapið en liðið hafði fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar fyrir leiki dagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×