Körfubolti

Hörður Axel og félagar fengu skell í botnslagnum

Hörður Axel Vilhjálmsson.
Hörður Axel Vilhjálmsson. vísir/daníel
Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í spænska körfuboltaliðinu Valladolid töpuðu enn einum leiknum í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Að þessu sinni gegn Tuenti Movil Estudiantes, 59-89, sem var í næstneðsta sæti deildarinnar fyrir leikinn. Hörður Axel skoraði þrjú stig í leiknum, tók eitt frákast og gaf eina stoðsendingu.

Valladolid er aðeins með tvö stig í botnsæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×