Handbolti

Stórleikur Ólafs Bjarka dugði ekki til

Ólafur Bjarki Ragnarsson.
Ólafur Bjarki Ragnarsson. vísir/bongarts
Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði sex mörk fyrir botnlið þýsku úrvalsdeildarinnar, Emsdetten, í kvöld en það dugði ekki til sigurs gegn Balingen.

Lokatölur 25-25 í leik þar sem Emsdetten var alltaf skrefinu á undan. Oddur Gretarsson og Ernir Hrafn Arnarson skoruðu báðir þrjú mörk fyrir Emsdetten.

Arnór Þór Gunnarsson skoraði eitt mark fyrir Bergischer sem tapaði, 27-28, á heimavelli gegn Wetzlar. Virkilega svekkjandi.

Björgvin Páll Gústavsson varði fimm skot fyrir Bergischer sem er í þrettánda sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×