Berglind Guðmundsdóttir heldur úti matarblogginu GulurRauðurGrænn&salt. Hún deilir uppskrift að ljúffengum og litríkum laxi.
Lax í engifer og hvítlauksmarineringu með fetaostakartöflumús
fyrir 4
1 laxaflak (um 800 g)
5 msk. hlynsýróp
70 ml vatn
1 msk. engifer, rifinn
2 hvítlauksrif, pressuð
1 tsk. rauðar piparflögur
Setjið sýróp, vatn, engifer, hvítlauk og piparflögur saman í pott og hitið þar til þetta hefur blandast vel saman. Kælið lítillega. Setjið laxinn í ofnfast mót og hellið marineringunni yfir. Eldið í ofni við 200°C í 12 til 14 mínútur. Berið fram með fetaostakartöflumús og góðu salati.
Fetaostakartöflumús
500 g kartöflur
180 g smjör
½ tsk. salt
mjólk eftir þörfum
100 g fetaostur
1 grilluð paprika, skorin í bita
Skrælið kartöflurnar og sjóðið í söltu vatni í 20 mínútur eða þar til þær eru soðnar í gegn. Stappið þær og bætið smjöri og salti saman við. Smakkað til með mjólk þar til kartöflumúsin hefur náð æskilegri áferð. Blandið fetaosti og grillaðri papriku saman við.
