Körfubolti

Hlynur með tvöfalda tvennu í stórsigri

Hlynur og Jakob.
Hlynur og Jakob. vísir/valli
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons vann afar auðveldan sigur, 61-92, á LF Basket í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Hlynur Bæringsson bauð upp á tvöfalda tvennu fyrir Sundsvall í kvöld. Skoraði 12 stig og tók 10 fráköst. Hlynur gaf einnig 4 stoðsendingar.

Jakob Örn Sigurðarson skoraði 15 stig, tók 2 fráköst og gaf eina stoðsendingu.

Ægir Þór Steinarsson skoraði 4 stig, tók 5 fráköst og gaf 5 stoðsendingar.

Sundsvall er í fjórða sæti sænsku deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×