Handbolti

Hannover nældi í stig á Spáni

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Rúnar Kárason í leik með Bergischer á sínum tíma
Rúnar Kárason í leik með Bergischer á sínum tíma Vísir/Getty
Rúnar Kárason og félagar í TSV Hannover-Burgdorf fengu sín fyrstu stig í A-riðli EHF-bikarsins í handbolta í dag þegar leik liðsins gegn Ademar Leon lauk með 30-30 jafntefli á Spáni.

Leikurinn í dag var í járnum og fóru liðin jöfn inn í hálfleikinn 16-16 og gengu aftur jöfn til búningsklefanna að leik loknum.

Rúnar sem gekk til liðs við Hannover í nóvember hefur byrjað vel með Hannover og skilaði þremur mörkum í dag. Liðin mætast aftur í Hannover þann 16. mars næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×