Handbolti

Aðalsteinn hjá Eisenach eitt ár í viðbót

Aðalsteinn Reynir Eyjólfsson.
Aðalsteinn Reynir Eyjólfsson. mynd/aðsend
Handboltaþjálfarinn Aðalsteinn Reynir Eyjólfsson er búinn að framlengja samningi sínum við þýska úrvalsdeildarfélagið Eisenach.

Aðalsteinn mun stýra liðinu út næstu leiktíð en hann er að klára sitt fjórða ár hjá félaginu.

Staða Eisenach í úrvalsdeildinni er erfið og liðið í fallhættu. Aðalsteinn mun þjálfa liðið þó svo það falli niður um deild.

"Fjölskyldunni líður vel hér og ég er með góðan stuðning frá stjórninni. Það er ómetanlegt að hafa þennan stuðning," sagði Aðalsteinn.

Samkvæmt heimildum Vísis kom Aðalsteinn til greina hjá Magdeburg sem var að leita að þjálfara fyrr í vetur. Félagið réð þó Geir Sveinsson á endanum.

Aðalsteinn hefur gert magnaða hluti með lið Eisenach og ljóst að verk hans fara ekki fram hjá forráðamönnum annarra félaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×