Handbolti

Sigurmark í blálokin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rúnar fagnar marki í leik með íslenska landsliðinu.
Rúnar fagnar marki í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/AFP
Hannover-Burgdorf hafði betur gegn Emsdetten, 28-27, í Íslendingaslag í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Torge Johannsen skoraði sigurmark Hannover-Burgdorf á lokasekúndum leiksins en gestirnir frá Emsdetten voru með tveggja marka forystu, 26-24, þegar rúmar fjórar mínútur voru til leiksloka.

Rúnar Kárason skoraði fjögur mörk fyrir Hannover-Burgorf í leiknum en Ernir Hrafn Arnarson eitt fyrir Emsdetten. Oddur Gretarsson skoraði ekki að þessu sinni.

Hannover-Burgdorf er í níunda sæti deildarinnar með 46 stig en Emsdetten er sem fyrr á botninum með sjö stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×